Í fréttum er þetta helst (2023)

by Bein útsending
Reykjavík City Theatre (2023)

 
 

A theatrical research about the performativity of televised news

Fréttaútsendingar eiga minni í þjóðarsál Íslendinga. Leikmyndirnar og stefin endurspegla tíðaranda hvers tíma, og ógjörningur að finna sannari spegil á samtímann en nýjasta fréttatímann. Fréttir eru sannleikur, og flutningur á þeim sannasti performansinn, enda ekki um neinn leik né lygi að ræða heldur hlutlausa miðlun upplýsinga. Eða hvað? Hvað leynist handan myndavélarinnar? Af hverju talar fréttaþulurinn svona skringilega? Eru þessar fréttir allar eins skrifaðar? Eru þessar endalausu sjónvarpsútsendingar kannski að renna sitt skeið? Erum við orðin dofin?

Sviðslistahópurinn BEIN ÚTSENDING ætlar að gera þessum óljósu mörkum sannleikans og sviðssetningarinnar skil með því að rannsaka hina performatívu eiginleika fréttaflutnings; fagurfræði, form, aðferðir og umgjörð. Niðurstöður hópsins verða kynntar fyrir áhorfendum á sviði, í beinni útsendingu, þar sem allt er undir og ekkert má klikka.

Kæru landsmenn, í fréttum er þetta helst.

Duration: 45 minutes.

 
 

Bein útsending:
Annalísa Hermannsdóttir, Hákon Örn Helgason, Katrín Helga Ólafsdóttir, Magnús Thorlacius

Special thanks:
Birta Björnsdóttir, Bogi Ágústsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Halla Björg Randversdóttir, Magnús Þór Þorbergsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir

Performed at:
Reykjavík City Theatre (Feb 2023)