Skeljar (2025)
by Magnús Thorlacius
Directed by Magnús Thorlacius
Ásmundarsalur, Reykjavík (2025)
Að gifta sig er í raun ekkert annað en að setja upp leikrit á stærsta degi lífs síns. En er það að vera í hjónabandi leikrit líka?
Skeljar er leiksýning um par sem stendur frammi fyrir einhverri stærstu spurningu sem hægt er að spyrja aðra manneskju; hvort hún vilji eyða restinni af lífi sínu með sér. Annarri hæðinni í Ásmundarsal er umbreytt í drauma brúðkaupssal persónanna þar sem þau sjá fyrir sér stóra daginn sem og breytingarnar sem hann mun hafa í för með sér á líf þeirra.
★★★★ Verðskuldar alla athygli þeirra sem unna listrænni fágun og sýn ungra og efnilegra skálda á eilífu viðfangsefnin: ást, hamingju, hlutverkin sem við leikum í lífinu og mikilvægi þess að hlusta á raddirnar í höfðinu.“ -Þ.T., Morgunblaðið
„[Magnús] skapar tilfinnigaríkar og áhugaverðar persónur sem eiga í stanslausum innri átökum sem og átökum við hvert annað. […] Leikur þeirra Vilbergs og Hólmfríðar var sannfærandi og einlægur, og þau ná að skila flóknu tilfinningalífi persónanna til áhorfandans.“ -K.Á., RÚV
„Samtölin eru prýðilega skrifuð, renna vel og halda hæfilega vel spennunni milli einstaklinganna.“ -S.A., T.M.M.
„Magnús Thorlacius […] hefur stigið fast til jarðar á leiksviðinu síðastliðin misseri.“ -S.J., Heimildin
Höfundur og leikstjóri: Magnús Thorlacius
Leikarar: Hólmfríður Hafliðadóttir og Vilberg Pálsson
Tónlist og hljóðmynd: Katrín Helga Ólafsdóttir
Aðstoðarleikstjóri: Ástrós Hind Rúnarsdóttir
Leikmynd og ljós: Magnús Thorlacius
Ljósmyndir og kvikmyndataka fyrir markaðsefni: Annalísa Hermannsdóttir
Ljósmyndir af sýningu: Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Grafísk hönnun: Guðrún Sara Örnólfsdóttir
Sérstakar þakkir: Annalísa Hermannsdóttir, Franz Valgarðsson, Kristín Lára Ólafsdóttir, Ljósadeild Borgarleikhússins, Pálmi Jónsson, Tóma Rýmið, Tómas Óli K. M., ÞA Kranar